Tuesday, March 3, 2009

Er listamaður skrásetjari?

Ég las í Morgunblaðinu í dag 3. mars grein eftir Einar Fal um ljósmyndun. Þar segir hann frá ljósmyndasýningu og talar bæði um ljósmyndarana sem listamenn og skrásetjara. Í fyrstu stakk þetta í stúf við hugmyndir mínar um listamenn en svo fór ég að hugsa. Ég hugsaði og spjallaði við vin og spurði hann. Heyrðu, getur listamaður verið skrásetjari? Já, auðvitað getur skásetjari verið skapandi listamaður. Já, auðvitað var það rétt hjá vini mínum og Einari Fal. Listamaður er alltaf að skrá skynjanir sínar og hugmyndir sem birtast í verkum hans. Þar með var þeim pælingum lokið og litli prinsinn búin að plata mömmu sína í Twister.